...og það eru engar undanþágur...

„Almennt er þetta þannig að við erum að ganga inn í klúbbinn og í honum gilda reglur klúbbsins og í þeim málum sem varða tollabandalagið og innri markaðinn þá hlítum við þeim lagaramma sem Evrópusambandið hefur og það eru engar undanþágur í því. Það erum við sem erum að ganga í Evrópusambandið, ekki Evrópusambandið í okkur.“

Um hvað er þá verið að ræða? Er þá engin pakki? Er þá bara verið að ljúga að okkur að það séu smningaviðræður í gangi við Evrópusambandið þegar ENGAR UNDANÞÁGUR ERU Í BOÐI?

Ég hélt að þegar menn stæðu í mikilvægum SAMNINGAVIÐRÆÐUM þá þyrftu allir að gefa eftir, en nú mætir Mörðurinn og segir að ekkert sé að semja um heldur er þetta bara kynning á reglum ESB sem við VERÐÐUM að taka upp 100% þar á meðal ónýta sjávarútvegsstefnu sambandsins.

Þessi uppljóstrun Marðar er í andstöðu við skylirði Alþingis en það ágæta þing hélt að blása ætti til VIÐRÆÐNA við ESB þar sem EKKI MÁ GEFA EFTIR HAGSMUNI ÍSLANDS sem er núna klárlega andstætt fullyrðingum Marðar í dag um að ALLT VERÐI GEFÐ EFTIR MÖGLULAUST ENDA UM EKKERT AÐ SEMJA! 


mbl.is ESB ekki að sækja um á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhlaupið á velferðakerfi Norðurlanda hafið!

Velferðarkerfi Danmerkur er þegar undir miklu álagi eigin þegna og mun það ekki standast lengi ásælni íbúa fátækra Evruríkja. Suður og austur Evrópu Evrulönd eru dæmd til að verða hjálendur Þýskalands og Frakklands og mun fólk með "viti" flytja til Norðurlandanna og setjast í auknum mæli upp á velferðarkerfi þessara þjóða.

Við sem EES þjóð munum ekki fara varhluta af þessari ásælni í velferðarkerfi okkar enda hafa fallið dómar nýlega í Noregi þar sem Norðmönnum er skylt að taka alla sem óska þessa upp á sína arma, ekki þarf að vinna nema í klukkutíma í Noregi til að fá aðgang að velferðarkerfi þeirra. Þess verður ekki langt að bíða að "framtaksamir" "einkaframtaksmenn" í "útrás" á Íslandi fari að gera út á þessa nýju "ferðamenn" og að við förum að sjá ótímabær dauðsföll Íslendinga vegna þess að velferðarkerfi okkar verður umsetið af íbúum fátækra Evrulanda og það mun ekki lengur ráða við að sinna lífsnauðsynlegum þörfum innfæddum sem hafa byggt upp þetta kerfi með blóð og svita síðustu hálfu öldina.

Tjónið af völdum EES samningsins er þegar orðið gríðarlegt, eins og flestir landsmenn þekkja á eigin skinni, og bætist nú við á næstu áratugum væntanlega við ónýtt velferðarkerfi. Ávinningur ESS samningsins umfram bókun 6 frá 1972, sem öðlaðist gildi 1976, er akkúrat minni en enginn enda hefði verið hægt að útfæra bókun 6 margfalt betur eins og er búið að sanna sig svo oft síðan í tvíhliða samningum milli ESB og annarra landa.

Okkur er ekki vært lengur í EES enda hefur ESB í hyggju að senda þar inn lönd eins og Úkraníu og Hvíta Rússland áður en þau fá að líta dýrðina í ESB, það þarf ekki að spyrja að leikslokum ef þessar austur Evrópu þjóðir fá að valsa óhindrað um EES löndin Ísland og Noreg. Kannski er það markmiðið að senda þessu þrjósku EES lönd Ísland og Noreg aftur á steinöld svo að þau verði meðfærilegri þegar þau koma á hnjánum að hliðum ESB.


mbl.is Flýja kreppuna til Danmerkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Iceland Responsible Fisheries?

Íslenskar útgerðir að stunda afrán frá komandi kynslóðum afríkumanna í skjóli nætur?

Mikið áfall fyrir umhverfismerkið  "Iceland Responsible Fisherie" ef satt er.


mbl.is Miðin við Vestur-Sahara lokast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir - Evrópuþingið með bein í nefinu!

Evrópuþingið kemur í veg fyrir niðurgreitt afrán Spánverja. Íbúar landa sem ESB semur við um fiskveiðar verða að njóta ávinnings svo að þingið telji um löglegar veiðar að ræða. Hvar standa íslenskar útgerðir sem hafa stundað veiðar eftir samningum ESB við önnur ríki? Hver er ábyrgð íslenskra stjórnvalda í veiðum íslenskra útgerða í stofnum annarra landa þar sem íbúar njóta ekki ávinnings?

Væri gaman að fá nánari umfjölun um þetta á mbl.is.


mbl.is Marokkó og ESB deila um veiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhugavert!

Kannski von um annað en nýjan tískuflokk, jafnvel flokk með göfug markmið sem standast og færir okkur öllum betri þjóðfélag.

Ég ætla allavega að hlusta á hvað þetta nýja afl hefur fram að leggja!


mbl.is „Vil endurvekja grunngildi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Már sagði" ekki - Og ónýt peningaálastefna.

Már gleymdi alveg að nefna ónýta peningamálastefnu síðan 2001 en honum er svo sem vorkunn þar sem hann er aðalhöfundur hennar, það er hvort sem er ómögulegt að segja fiski eins og Má að sjórinn sé blautur. Snjóhengjurnar, gjaldeirishöftin og jöklabréfin hans Más eru afrakstur peningamálastefnunnar, EES samningsins og lávaxta á erlendum mörkuðum fyrir hrun.
mbl.is Gjaldeyrisskuldbindingar banka verði takmarkaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjávarútvegurinn var fyrir löngu hættur að fjárfesta í varanlegum rekstrarfjármunum.

 Úr Skýrslu unnin fyrir starfshóp sem skipaður var af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til að endurskoða fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar.

"Stækkun efnahagsreikningsins í SDR verður vegna fjárfestinga. Mest aukning er í öðrum eignum en þær hækka um 507% á þessu tímabili (1997-2008) mælt í SDR en um 1075% ef hækkunin er mældi í ISK. Undir öðrum eignum eru aflaheimildir þannig að hækkun þessa liðar hefur einkum verið vegna fjárfestinga í aflaheimildum. Athyglisvert er að varanlegir rekstrarfjármunir hækka ekki á þessum tímabili. Til varanlegra rekstrarfjármuna teljast meðal annars skip, tæki og hús. Mælt í SDR lækkar þessi liður um 46% en hækkar einungis um 4% mælt í ISK. Því hefur stækkun efnahagsreiknings og aukin skuldsetning íslensks sjávarútvegs ekki verið vegna fjárfestinga í varanlegum rekstrarfjármunum."

"Okkar niðurstaða er sú að hækkun skulda frá 2003, sem ekki er vegna gengishruns krónunnar 2008, hafi verið 50-60% vegna kaupa á aflaheimildum. Við áætlum að 20-30% hafi verið vegna fjárfestinga í ótengdum rekstri og afgangurinn 10-15% vegna taps á gjaldeyris- og afleiðuviðskiptum. Þar sem varanlegir rekstrarfjármunir hækka ekki á þessum tíma í SDR þá er það mat okkar að þær fjárfestingar hafi ekki hækkað skuldir íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja frá árinu 2003."

"Best er að skoða skuldir greinarinnar með því að athuga þróun á nettóskuldum. Nettóskuldir eru heildarskuldir að frádregnum veltufjármunum. Nettóskuldir leiðrétta því fyrir sveiflum á skuldsetningu sem verður t.d. vegna birgðasöfnunar. Í árslok 1997 voru nettóskuldir íslensks sjávarútvegs samkvæmt tölum Hagstofunnar 892 millj. SDR sem þá var 87 ma. ISK. Í árslok 2008 voru nettóskuldir íslensks sjávarútvegs samkvæmt sömu heimildum 2.473 millj. SDR sem þá var 465 ma. ISK. Þetta er því 437% hækkun eða rúmlega 5 földun á skuldum í ISK en 177% hækkun í SDR. Því er ljóst að efnahagsleg staða greinarinnar hefur stórversnað á þessu tímabili. Þegar rýnt er í töfluna kemur í ljós að árið 2003 verða kaflaskil. Árin þar á undan var lítil breyting á heildarskuldum íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Ákveðin umpólun veður svo árið 2003 við einkavæðingu stórs hluta íslenska bankakerfisins. Aðgengi íslenskra fyritækja að lánsfé eykst og í framhaldi vex skuldsetning þeirra. Sú þróun verður síðan í íslenskum sjávarútvegi líkt og öðrum greinum íslensks atvinnulífs að skuldsetning eykst mikið."

throun_a_verdi_aflahlutdeildar_1099373.jpg

me_alaldur_skipa_1999_til_2009.png

_orskafli_og_heildar_bruttotonn_skipa_1999_til_2009.png

tiu_mestu_hagsmunathjodir_-_fiskvei_ar_1095602.png


mbl.is Ísland dregst aftur úr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið óstöðuga stöðugleikatákn Evrópusinna á fartinu.

Aðal rök sambandssinna er að við inngöngu í USE þá fáum við náðarsamlegast að taka upp hinn stöðuga óstöðuga gjaldmiðil Evruna gegn því að leggja hluta af fullveldið í pott í Brussel. ESB-istarnir geta síðan lagt niður hina óstöðugu ónýtu/handónýtu/handhandónýtu krónu.

Atvinna handa öllum, sem vilja, er eini alvöru stöðugleikinn enda er atvinnuleysi böl sem ekki má festa varanlega rætur hérna. Atvinnuleysingjanum er nákvæmlega sama hvort nýji bíllin kosti Evrur eða Krónur þegar hann á hvort sem er ekki fyrir mat.

Með upptöku Evru munum við með tímanum taka upp atvinnuleysismenningu Evrópu og í framhaldinu tekur við varanleg hnignun á Íslandi næstu aldirnar.


mbl.is Evran ekki ódýrari í 7 mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefndin fyrir herinn?

Gunnarstaðar-Móri gengur berserksgang gegn Suðurnesjamönnum og refsar þeim fyrir hálfrar aldar veru hersins á Suðurnesjum, hann vílar ekki fyrir sér að beita fyrir sig Kanadísku skúffufyrirtæki í Svíþjóð til að koma fram hefndum þótt óvinurinn sé fyrir löngu farin af eigin hvötum.

Maður veltir því fyrir sér hvort Steingrímur sé haldin rótgrónu hatri gegn öllu sem búa á Suðurnesjum?


mbl.is Leynimakk með Magma Energy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lækkun á fasteignaverði.

Verði langþráð skref stigið og verðtrygging afnumin á íbúðalánum þá mun margt koma fram, meðal annars þetta:

1. þá kemur betur í ljós raunveruleg greislubyrði íbúðarlána sem mun leiða til lækkunar á húsnæðisverði og að fólk mun sækja í minni eignir, stærri eignir munu örugglega lækka í verði enda mun kaupendahópurinn minka töluvert.

2. Vextir munu verða breytilegir og að jafnaði +1-1,5% hærri en af verðtryggðum lánum .

2. Fáir munu kaupa þegar verðbólga er há enda munu mun færri standast greiðslumat.

3. Verðbólguskot mun fella samstundis þá sem verst standa enda munu þeir ekki ráða við snögga breytingu á vaxtagreiðslum en flestir munu bjarga sér með tilheyrandi viðbótarlántökum jafnvel á hverju ári ef gæftir eru slæmar.

4. Fólk fer þá  að beina sjónum sínum beint að stjórnmálamönnum og lélegri hagstjórn þeirra þegar illa árar enda verður ekki hægt að kenna verðtrygginguni um.


mbl.is Íbúðalánasjóður veiti óverðtryggð lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Eggert Sigurbergsson
Eggert Sigurbergsson
Er bara almennur skattgreiðandi

Jan. 2012

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband